

micare Freshmop moppusett
Með VSK
Uppselt! - Ný sending væntanleg í kring um miðjan júní
FreshMop tæknin frá micare tryggir að þú þrífur alltaf með hreinu vatni, frá byrjun til enda. Kerfið skilur sjálfkrafa að hreint og óhreint vatn þannig að bakteríur berast ekki á milli herbergja. Óhreina vatnið fer í sérhólk með hjálp sérhannaðs síu- og kreistikerfis sem heldur moppunni hreinni, ferskri og tilbúinni til notkunar hvenær sem er.
FreshMop gerir heimilisþrifin auðveldari, þægilegri og mun snyrtilegri.
Helstu kostir Fershmop eru:
- Engin bakteríudreifing milli rýma þar sem vatnið helst hreint
- Tímasparnaður! Engin vatns- eða fötuskipti og ekkert að beygja sig
- Ein sápublanda helst hrein út notkunartímann
- Snertilaust kerfi. Þú snertir aldrei moppuna
- Öruggt fyrir viðargólf. Notar lágmarks magn af vatni eða sápulausn.
- Engin þörf á að þurrka gólfin eftir skúrun eða moppun.
- Létt, meðfærilegt og einfalt í notkun
- Sparar pláss, skaftið fer í sundur svo settið tekur minna pláss í geymslu
- Hönnun sem má sjást
- Virkar með sápuvatni eða einungis hreinu vatni
- Hægt að bæta ilmkjarnaolíum í vatnið fyrir ferskan ilm
- Sérlega hentugt fyrir viðargólf
- Tveir moppuklútar fylgja með
Stærðir:
Hæð (fata): 39,7 cm
Breidd: 18,8 cm
Lengd: 26 cm
Lengd á skafti: 133 cm

Vefverslun










