
BOX7268 Round innbyggt sturtutæki - Polished Brass (9428852)
Með virðisauka
Sérpöntunarvara
Vara þessi er alla jafna sérpöntunarvara en tilfallandi geta verið til einstaka stykki á lager.
Um sérpöntunarvörur gilda aðrar reglur um skipti og skil. Sjá reglur um skil og skipti
Pöntunartími frá Tapwell
Alla jafna tekur ca 4 - 5 vikur (+/-) að fá pantanir frá Tapwell eftir að pöntun er send frá okkur, að því gefnu að varan sé til á lager hjá framleiðanda. Pantað er á ca. 2 mánaða fresti, það getur þó verið breytilegt eftir álagi.
BOX7268 Round frá Tapwell er glæsilegt innbyggð sturta sem sameinar minimalíska hönnun og mikla virkni. Innbyggð uppsetning skapar hreint og fágað útlit þar sem lagnir og tengingar eru faldar í veggnum.
Sturtan er með þrýstijafnaðri hitastýringu, 250 mm sturtuhaus og handsturtu. Innbyggða stýriboxið fylgir með og tryggir þægilega og örugga uppsetningu.
BOX7268 Round fæst í 9 mismunandi áferðum, svo auðvelt er að samræma sturtuna öðrum blöndunartækjum og fylgihlutum á baðherberginu.
Athugið: Tengirör í vegg og festiskinnur fylgja ekki með og þarf að kaupa sérstaklega.
Polished Brass er ekki PVD húðuð áferð og mun með tímanum þróa með sér náttúrulega patínu. Litur og áferð geta því breyst og dökknað með aldrinum.

Vefverslun










