
micare Softcare Textile
Tax included.
Þessi vara er væntanleg til okkar um mánaðarmótin júní/júlí.
SOFTCARE TEXTILE er milt og áhrifaríkt textílhreinsiefni fyrir daglega notkun. pH-hlutlausa formúlan hreinsar varlega, nærir trefjar efnisins og hjálpar til við að viðhalda náttúrulegu útliti, mýkt og uppbyggingu textíls.
Varan hentar sérstaklega vel fyrir viðkvæm efni og blandað efnisval þar sem hefðbundin hreinsiefni geta verið of sterk.
Tilbúið til notkunar, sem gerir SOFTCARE TEXTILE hentugt bæði fyrir hraðhreinsun og ítarlegri þrif á húsgögnum, púðum, fatnaði og öðrum textíl á heimilinu.
Helstu kostir
- pH-hlutlaust og milt hreinsiefni
- Hentar viðkvæmum textíl og trefjum
- Hjálpar til við að varðveita náttúrulegt útlit efnis
- Hentar bæði hreinum og blönduðum efnum
- Tilvalið fyrir húsgögn, púða, mottur og fatnað
- Tilbúið til notkunar
Notkunarleiðbeiningar
Vætið meðfylgjandi svamp undir rennandi vatni, hann þenst út á um það bil 1 mínútu. Kreistið umfram vatn úr.
Berið hæfilegt magn af hreinsiefni beint á svampinn og hreinsið yfirborðið með mjúkum hreyfingum.
Mælt er með að hreinsa allan hlutinn til að fá jafna áferð. Þurrkið síðan yfir með hreinum, vel undnum klút og hreinu vatni.
Við blettahreinsun er best að vinna frá jaðri blettsins og inn að miðju til að forðast að dreifa honum.
Leyfið efninu að þorna á náttúrulegan hátt.
Mælt er með að prófa alltaf á lítt sýnilegu svæði fyrst.
Hentar fyrir
- Húsgagnaáklæði
- Fatnað
- Púða
- Mottur
- Útipúða
- Bílsæti
- Bómull
- Flauel
- Lín
- Pólýester
- Striga
- Blönduð efni
Athugið: Fyrir ull, jútu, sjávargras (seagrass) og sisal er mælt með micare hreinsisápunni (Rensesæbe).
Meðfylgjandi svampur er úr náttúrulegum plöntutrefjum, mjög rakadrægur og niðurbrjótanlegur. Hann harðnar þegar hann þornar en mýkist strax við vatn.
Mál (þurr): L 8 x B 4 x D 0,5 cm
Mál (blautur): L 8 x B 4 x D 5 cm
Innihald: 500 ml – tilbúið til notkunar
Inniheldur ilm
pH-hlutlaust hreinsiefni | fjölnota

Vefverslun










