micare Kit 12 | Glass & tile protection

Tilboðsverð14,300 kr

Með virðisauka


Árangursrík fjarlæging útfellinga og ósýnileg vörn – allt í einu setti.
Kalk og kísill, sápuleifar og óhreinindi geta látið jafnvel fallegustu yfirborð líta dapurlega út.

Með Kit 12 færðu heildarlausn sem bæði fjarlægir þráláta útfellingar úr vatni – og ver yfirborðið gegn framtíðar uppsöfnun. Settið inniheldur allt sem þú þarft til djúphreinsunar og langvarandi yfirborðsmeðferðar á gleri, flísum, postulíni og keramik.

KIT 12 inniheldur: 200 ml LIMESCALE REMOVER, 200 ml NANO COAT, 2 náttúrulega sisal-þrifpúða og 2 pappírsarkir til að bera NANO COAT á.

LIMESCALE REMOVER

Öflugur og mildur kalk- og kísil hreinsir sem endurheimtir gljáa jafnvel á yfirborðum sem hafa orðið fyrir miklum áhrifum. Fjarlægir kalk og kísil, ryð, sápuleifar og óhreinindi – án sterkra sýra og skaðlegra efna. Notist á röku yfirborði með meðfylgjandi sisal-púða.

Hentar fyrir: sturtuklefa, glerveggi og -hurðir, veggflísar, vaska, baðkar o.fl.

Náttúrulegir sisal þrifpúðar

Búnir til úr 100% náttúrulegum trefjum. Veita áhrifaríka skrúbbun án þess að rispa og virka fullkomlega með LIMESCALE REMOVER. Endurnýtanlegir og má þvo í uppþvottavél við 60°C.

NANO COAT

Langvirk og ósýnileg yfirborðsmeðferð sem gerir útfellingum og óhreinindum erfitt fyrir að festast. Gerir þrif auðveldari og lengir líftíma yfirborða. Berist á í tveimur lögum með meðfylgjandi pappírsörkum á hreint, þurrt yfirborð.

Myndar sterka og gegnsæja vörn – án þess að breyta lit eða ásýnd yfirborðsins.

Mælt er með:
Að nota micare SURFACE MAINTAIN reglulega til að viðhalda auðveldri hreinsun og halda yfirborðum fallegum lengur.

Notkunarleiðbeiningar á íslensku 


Náttúrulegar og umhverfisvænar vörur

Sendum um allt land

Við sendum vörur um allt land. Ef verslað er yfir 20.000 kr. í vefverslun færðu vöruna frítt til þín á næsta pósthús.

Þjónusta

Við svörum spurningum þínum í síma og tölvupósti mánudaga til föstudaga

Örugg greiðslumiðlun

Greiðsluupplýsingar eru meðhöndlaðar á öruggan hátt