Handle Lip 80c/c - Stainless Steel

Tilboðsverð3.500 kr

Með VSK


Sérpöntunarvara

Vara þessi er alla jafna sérpöntunarvara en tilfallandi geta verið til einstaka stykki á lager.
Um sérpöntunarvörur gilda aðrar reglur um skipti og skil. Sjá reglur um skil og skipti

Aldrei er veittur afsláttur af sérpöntunarvöru.

Pöntunartími frá Beslag Design

Alla jafna tekur ca 3 vikur (+/-) að panta vörur frá Beslag Design, að því gefnu að varan sé til á lager hjá framleiðanda.
Vinsamlegast hafið samband við okkur í síma 544 4422 eða í gegnum tölvupóstfangið orgus@orgus.is til að tryggja ykkur eintak.
Athugið að sérpantanir eru ávallt greiddar að fullu fyrirfram


Lip prófílhaldan frá Beslag Design er einfalt og fágað handfang sem gefur skápum og skúffum nútímalegt og stílhreint útlit. Haldan festist á framkant hurðar eða skúffu og myndar þægilegt grip án þess að taka mikið pláss í hönnuninni.

Þunn og falleg lína handfangsins passar sérstaklega vel í nútímaleg eldhús, baðherbergi og sérsmíðaðar innréttingar þar sem markmiðið er að halda útlitinu minimalísku og hreinu.

Lip handfangið fæst í 6 mismunandi litum í 80c/c útgáfunni.

Tæknilýsing

  • Lengd: 120 mm
  • Breidd: 1,5 mm
  • Dýpt: 39 mm
  • Hæð: 12 mm
  • Þvermál: 120 mm
  • Skrúfufjarlægð (C/C): 80 mm

Beslag Design

Bæklingar

Beslag Design er með ótrúlegt úrval af höldum, hnöppum, hurðahúnum og alls kyns fylgihlutum fyrir heimilið. Orgus hefur því miður ekki tök á að vera með allar vörur á lager en hægt er að sérpanta hjá okkur allar vörur frá Beslag Design og tekur pöntunarferlið alla jafna í kring um 3 vikur.

Tímarit - Details

Í tímaritinu Details frá Beslag Design geturðu fengið hugmyndir af notkun á nýjustu línum fyrirtækisins.

Vörulisti

Hér geturðu skoðað allar vörulínur Beslag Design og séð fáanlegar stærðir og útgáfur í litum.

Sendum um allt land

Við sendum vörur um allt land. Ef verslað er yfir 20.000 kr. í vefverslun færðu vöruna frítt til þín á næsta pósthús.

Þjónusta

Við svörum spurningum þínum í síma og tölvupósti mánudaga til föstudaga

Örugg greiðslumiðlun

Greiðsluupplýsingar eru meðhöndlaðar á öruggan hátt