

Handle Lip 80c/c - Stainless Steel
Með virðisauka
Sérpöntunarvara
Vara þessi er alla jafna sérpöntunarvara en tilfallandi geta verið til einstaka stykki á lager.
Um sérpöntunarvörur gilda aðrar reglur um skipti og skil. Sjá reglur um skil og skipti
Aldrei er veittur afsláttur af sérpöntunarvöru.
Pöntunartími frá Beslag Design
Alla jafna tekur ca 3 vikur (+/-) að panta vörur frá Beslag Design, að því gefnu að varan sé til á lager hjá framleiðanda.
Hægt er að panta og greiða hér á vefnum til að tryggja sér eintök.
Við hringjum í þig þegar varan þín er komin í hús til okkar.
Lip prófílhaldan frá Beslag Design er einfalt og fágað handfang sem gefur skápum og skúffum nútímalegt og stílhreint útlit. Haldan festist á framkant hurðar eða skúffu og myndar þægilegt grip án þess að taka mikið pláss í hönnuninni.
Þunn og falleg lína handfangsins passar sérstaklega vel í nútímaleg eldhús, baðherbergi og sérsmíðaðar innréttingar þar sem markmiðið er að halda útlitinu minimalísku og hreinu.
Lip handfangið fæst í 6 mismunandi litum í 80c/c útgáfunni.
Tæknilýsing
- Lengd: 120 mm
- Breidd: 1,5 mm
- Dýpt: 39 mm
- Hæð: 12 mm
- Þvermál: 120 mm
- Skrúfufjarlægð (C/C): 80 mm

Beslag Design
Bæklingar
Beslag Design er með ótrúlegt úrval af höldum, hnöppum, hurðahúnum og alls kyns fylgihlutum fyrir heimilið. Orgus hefur því miður ekki tök á að vera með allar vörur á lager en hægt er að sérpanta hjá okkur allar vörur frá Beslag Design og tekur pöntunarferlið alla jafna í kring um 3 vikur.

Tímarit - Details
Í tímaritinu Details frá Beslag Design geturðu fengið hugmyndir af notkun á nýjustu línum fyrirtækisins.

Vörulisti
Hér geturðu skoðað allar vörulínur Beslag Design og séð fáanlegar stærðir og útgáfur í litum.
Vefverslun










