




Handle Flow 160c/c - Burnished Brass
Tax included.
Sérpöntunarvara
Vara þessi er alla jafna sérpöntunarvara en tilfallandi geta verið til einstaka stykki á lager.
Um sérpöntunarvörur gilda aðrar reglur um skipti og skil. Sjá reglur um skil og skipti
Aldrei er veittur afsláttur af sérpöntunarvöru.
Pöntunartími frá Beslag Design
Alla jafna tekur ca 3 vikur (+/-) að panta vörur frá Beslag Design, að því gefnu að varan sé til á lager hjá framleiðanda.
Hægt er að panta og greiða hér á vefnum til að tryggja sér eintök.
Við hringjum í þig þegar varan þín er komin í hús til okkar.
Þessi vara er væntanleg á lager hjá birgja í viku 34 (24. - 28.júní).
Flow haldan sameinar fallega hönnun og framúrskarandi notagildi. Hreinar línur og vel útfærð hlutföll skapa tímalaust og nútímalegt yfirbragð sem passar jafnt á baðherbergi, eldhús, fataskápa og önnur húsgögn.
Hönnun handfangsins einkennist af beinu gripi sem tengist sívölum festingum og myndar þannig fágað útlit þar sem mýkt og skýr form vinna saman.
Handfangið fæst í tveimur lengdum og fjórum litum. Fyrir samræmt útlit er fallegt að para Flow handfangið saman við Flow T-hnappinn.
Flow handfangið er hluti af Beslag Design Signatures, vörulínu þar sem hönnun, gæði og vönduð smáatriði fara saman og skapa vörur sem endast og gleðja til lengri tíma.
Stærðir:
- Breidd: 12 mm
- Lengd: 172 mm
- C/C mál (miðja í miðju): 160 mm
- Dýpt: 30 mm
- Þvermál festinga: 12 mm

Beslag Design
Bæklingar
Beslag Design er með ótrúlegt úrval af höldum, hnöppum, hurðahúnum og alls kyns fylgihlutum fyrir heimilið. Orgus hefur því miður ekki tök á að vera með allar vörur á lager en hægt er að sérpanta hjá okkur allar vörur frá Beslag Design og tekur pöntunarferlið alla jafna í kring um 3 vikur.

Tímarit - Details
Í tímaritinu Details frá Beslag Design geturðu fengið hugmyndir af notkun á nýjustu línum fyrirtækisins.

Vörulisti
Hér geturðu skoðað allar vörulínur Beslag Design og séð fáanlegar stærðir og útgáfur í litum.
Vefverslun










