Eldhúsvaskur 5040 - Bronze (9427823)

Tilboðsverð175.900 kr

Með VSK


Tapwell TA5040 er vandaður stálvaskur sem sameinar tímalausa norræna hönnun, yfirburða gæði og framúrskarandi notendaupplifun.
Vaskurinn er 500x400 mm að innanmáli og 180 mm á dýpt og getur verið niðurfelldur, ofanáliggjandi eða undirlímdur.

Vaskurinn er framleiddur úr 1,2 mm þykku ryðfríu stáli, sem veitir honum mikinn styrk, stöðugleika og endingargott yfirborð.

Til að tryggja rólegt og þægilegt eldhúsumhverfi er hann mjög vel hljóðeinangraður, bæði með hljóðdempandi kvoðu og einangrunarleppum allan hringinn.
Þannig dregur hann úr hávaða þegar vatn eða áhöld snerta vaskinn.

Vaskurinn fæst í sex litum, þar sem Stainless Steel er óhúðað ryðfrítt stál, en hinir fimm litirnir eru með PVD húðun (Physical Vapor Deposition). Allir eldhúsvaskarnir koma með botnventli, vatnslás og loki fyrir yfirfallið.

Þrífðu vaskinn með mildum uppþvottalegi og volgu vatni og notaðu til þess uppþvottabursta eða mjúkan svamp. Gott er að strjúka mestu bleytuna af með góðri örtrefjatusku.


Subheading

Heading

Use this text to share information about your brand with your customers. Describe a product, share announcements, or welcome customers to your store.

Sendum um allt land

Við sendum vörur um allt land. Ef verslað er yfir 20.000 kr. í vefverslun færðu vöruna frítt til þín á næsta pósthús.

Þjónusta

Við svörum spurningum þínum í síma og tölvupósti mánudaga til föstudaga

Örugg greiðslumiðlun

Greiðsluupplýsingar eru meðhöndlaðar á öruggan hátt