





Base Handklæðastandur - Stainless Steel (606095-41)
Með VSK
Base handklæðastandurinn frá Beslag Design er stílhreint og hagnýtt smáatriði fyrir baðherbergi. Hann festist auðveldlega upp með sjálflímandi bakhlið, sem þýðir að engin þörf er á að bora til að festa. Handklæðastandurinn er örlítið styttri en hefðbundinn handklæðahengi og hægt er að nota hann bæði til að hengja upp handklæði eða til að stafla rúlluðum handklæðum á snyrtilegan hátt. Festist á varanlega slétta fleti eins og flísar, lakkað eða spónað plötuefni o.fl. Ekki er ráðlegt að festa vörurnar á ójöfn/gróf yfirborð þar sem límið nær ekki fullri snertingu eða yfirborð sem getur runnið eins og t.d. votrýmisveggfóður. Á nýflísalögðum veggjum er mikilvægt að yfirborðið sé hreinsað vel þannig að engin fúgafilma sitji eftir á uppsetningarfletinum.
Leiðbeiningar fyrir uppsetningu:
- Hreinsið yfirborðið vandlega og látið það þorna. (Hreinsiefnið má ekki innihalda olíu)
- Fjarlægið hlífðarfilmuna.
- Festið vöruna á með því að þrýsta henni á yfirborðið í 10 sekúndur.
- Til að tryggja bestu endinguna skal láta límið þorna í 24 klukkustundir áður en nokkuð álag er sett á vöruna eða vatn látið renna á eða í kringum hana.
- Notið hreinan, rakan klút þegar þið þrífið vöruna.
Uppsetningarupplýsingar (Installation Guide)
Lengd: 250 mm
Dýpt: 45 mm
Breidd: 50 mm

Beslag Design
Bæklingar
Beslag Design er með ótrúlegt úrval af höldum, hnöppum, hurðahúnum og alls kyns fylgihlutum fyrir heimilið. Orgus hefur því miður ekki tök á að vera með allar vörur á lager en hægt er að sérpanta hjá okkur allar vörur frá Beslag Design og tekur pöntunarferlið alla jafna í kring um 3 vikur.

Tímarit - Details
Í tímaritinu Details frá Beslag Design geturðu fengið hugmyndir af notkun á nýjustu línum fyrirtækisins.

Vörulisti
Hér geturðu skoðað allar vörulínur Beslag Design og séð fáanlegar stærðir og útgáfur í litum.
Vefverslun