Allt fyrir eldhús og bað

Orgus leggur sig fram við að vera með mikið úrval af vönduðum vörum fyrir eldhús og baðherbergi. Okkar markmið er að fólk þurfi ekki að fara á marga staði. Allt á einum stað.

Tapwell tvöfaldur eldhúsvaskur

Eldhúsvaskar

Orgus býður bæði fallega og vandaða stálvaska frá Tapwell í sex mismunandi litum, en einni endingargóða og sterka steinvaska frá þýska framleiðandanum Schock.

Baðvaskar

Orgus er með mikið úrval baðvaska. Haven vaskarnir eru fáanlegir undirlímdir og hálf ofanáliggjandi bæði í stáli í 5 litum auk hvíts steinvasks. Eins bjóðum við skemmtilega ofanáliggjandi baðvaskar frá ítalska fraleiðandanum Azzurra, í mörgum skemmtilegum litum

Eldhúsblöndunartæki

Eldhúsblöndunartækin frá Tapwell eru ekki bara ein þau vönduðustu á markaðnum heldur einnig falleg og fáanleg í 10 fallegum litum

Baðblöndunartæki

Baðblöndunartækin frá Tapwell er vönduð og falleg. Tapwell býður upp á margar útfærslur hvort sem þú vilt innbyggð tæki eða ekki. Litirnir eru níu svo allir ættur að finna eitthvað við sitt hæfi.

Picky Living framhliðar á IKEA

Sænska hönnunarfyrirtækið Picky Living hefur um árabil sérhæft sig í að framleiða vandaðar framhliðar á IKEA eldhúsinnréttingar og fataskápa. Gerðu þitt IKEA eldhús einstakt, einmitt eins og þú vilt hafa það.

Baðinnréttingar

Sænski innréttingaframleiðandinn Haven hefur sérhæft sig í innréttingum og aukahlutum á baðherbergi og nú líka í þvottahús. Falleg og vönduð framleiðsla í vönduðum viðarspóni. Speglar og salerni frá Haven setja líka punktinn yfir i-ið á baðherberginu.

Corian eldhúsborðplötur

Corian eldhúsborðplötur eru slitsterkar, blettaþolnar og samskeytalausar. Orgus er þekkt fyrir vandað handverk en við höfum smíðað úr Corian í yfir 25 ár.

Corian baðborð

Corian er hvað vinsælast í baðborð vegna þess eiginleika að vaskurinn getur verið samfelldur með plötunni, án nokkurra samskeyta. Fallegir litir og einföld og elegant útfærsla.

Fylgihlutir í eldhús

Þú finnur alls kyns aukahluti í eldhúsið hjá Orgus. Aukahlutir með vaskinum, sápuskammtarar, áhaldaslár á vegg og svo margt fleira.

Fylgihutir baðherbergi

Hjá Orgus færðu aukahluti á baðherbergið í mörgum úrfærslum og fjölda lita. Tapwell aukahlutirnir fást allir í sömu litum og blöndunartækin og því er hægt að fá allt í stíl. Ein vinsælasta aukahlutalínan okkar er Base linan frá Beslag Design sem er límd upp en ekki boruð.

Eldhúslín - Aspegren

Danski textílframleiðandinn Aspegren býður upp á eldhúslín úr 100% lífrænni bómull. Þeir eru með stakar borðtuskur, viskustykki og eldhúshandlæði. Vinsælust eru þó gjafasettin frá þeim sem fást í mörgum skemmtilegum útfærslum og samsetningum.

Salernisskálar

Orgus býður falleg og vönduð supphengd salerni frá Haven í fallegum jarðtónum. Einnig sérpöntum við salerni í mörgum skemmtilegum litum frá ítalska framleiðandanum Azzurra Ceramica.

Höldur og hnúðar

Orgus býður einstakt úrval af hurðahúnum, höldum og hnúðum frá sænska fyrirtækinu Beslag Design. Einnig er að finna hjá okkur skemmtilega og vandaða höldulínu frá Tapwell.

Límflísar

Límflísarnar frá Smart Tiles er ótrúlega einföld og góð lausm til að gera þægilegar og fallegar breytingar án þess að þurfa að kalla til iðnaðarmenn. Bara sníða og líma og sigurinn er unninn.

micare hreinsivörur

Umhverfisvænu dönsku hreinsivörurnar frá micare eru engu líkar. Vandaðar vörur þar sem lögð er áhersla á hreinar vörur sem virka án mikillar fyrirhafna. Nú fyrst verður gaman að þrífa.