Við fengum að kíkja í heimsókn í þetta fallega og hlýlega eldhús á höfuðborgarsvæðinu – þar sem hvert smáatriði var úthugsað✨
Eldhúsið var teiknað af arkitektinum Thelmu Björk Friðriksdóttur og húseigendur völdu vandaðar og vel útfærðar lausnir frá Orgus🤍
Framhliðarnar eru frá sænska framleiðandanum Picky Living sem sérhæfir sig í framhliðum á IKEA innréttingum. Hér var valið hlýlegur eikarspónn í bland við sprautulakkaðar gráar framhliðar – falleg og tímalaus samsetning. Steinborðplöturnar eru úr gegnheilu Corian í litnum Rain Cloud – blettaþolnar, slitsterkar og samskeytalausar með mjúkri, náttúrulegri áferð.
Arkitektinn kaus að fá Picky Living til að framleiða eikarklæðningu á vegg þar sem skáparnir eru sprautulakkaðir til að tengja betur saman þessi tvö svæði. Punkturinn yfir I-ið er svo þykka Corian hillan þar ofan á sem setur enn meiri elegans á rýmið.
Svart, útdraganlegt blöndunartækið og matti svarti vaskurinn er frá sænska framleiðandanum Tapwell sem Orgus er með umboð fyrir.
Við elskum hvernig efnisvalið og hönnunin skapa ramma utan um lífið í þessu eldhúsi. Það er einmitt þetta sem við viljum að okkar vörur geri – hjálpi fólki að skapa fallegt og persónulegt heimili!