Aðrir litir

Litirnir sem urðu eftir

Litirnir sem urðu eftir

Í mörgum verkefnum sem við vinnum verður eitthvað efni eftir. Plata sem var pöntuð í stærra verk, litur sem var valinn en verkefnið breyttist, bútur sem er of lítill í borðplötu en of fallegur til að henda.

Núna hefur þessum plötum fjölgað töluvert og eru í alls konar litum. Lava Rock, sem er dökkur og grófur eins og nafnið segir. Clam Shell, ljós eins og skeljasandur. Savannah, Arrow Root, Silver Birch svo einhverjir séu nefndir. Svo eru það bútarnir, sem henta fullkomlega í baðborð eða annars konar lítil verk.

Frá 22. september til 3. október bjóðum við 20% afslátt af lengdarmetranum á þessum efnum. Af sumum litum er eingöngu ein plata eftir, af öðrum tvær eða þrjár, og þegar liturinn er seldur fæst hann ekki aftur á þessu verði.

Þú þarft ekki að vera tilbúin/n strax. Máltaka og vinnsla má fara fram alveg fram í mars, svo það er nóg að velja bara litinn núna.

Allir litir, stærðir og skilmálar eru á lagersölusíðunni okkar.

Reading next

Nýir litir í Corian