Aðrir litir

Nýir litir í Corian

Nýir litir í Corian

"Nature in motion"


Corian® Design kynnti í apríl nýju litalínuna sína fyrir 2026 — Nature in Motion — og hún er þess virði að skoða.

Línan er innblásin af hreyfingu og hlýju náttúrulegra efna. Sjö nýjar litasamsetningar eru nú fáanlegar í Corian® þar sem flæðandi mynstur, lagskiptir tónar og hlýir brúnir og mókkalitur setja tóninn.

Travertín í nýju ljósi


Sérstaklega spennandi er nýr travertin litaflokkur með tveimur litum — hönnuð til að fanga dýpt og tónmun náttúrulegs steins, en án þeirra takmarkana sem fylgja honum. Hér er hægt að vinna með samskeytalausar flatar eða bognar línur og fleiri sérhönnuð element, eitthvað sem náttúrusteinn býður einfaldlega ekki upp á.


Corian Travertine Roma í hótel lobbýi
Corian Travertine Roma / mynd: Corian Design
Corian Travertine Firenze á kaffihúsi
Corian Travertine Firenze / mynd: Corian Design

Vasto - Náttúran í flæði


Í Vasto flokknum eru tveir nýir litir sem svipar nokkuð til Stonecrest Smoke, litar sem kom á markað 2024. Nýju litirnir tveir heita Vasto Greige og Vasto Laguna. Báðir eru með flæðandi æðar á ljósum grunni. Vasto Greige er eingöngu með brúnum og grábrúnum æðum en Vasto Laguna er að auki með bláum lit, tónar bæði frá himni og jörð Í réttu samhengi parast hann fallega með Terrazzo Laguna og Laguna, sem er einlitur blár litur. 

Afgreiðsluborð á kaffihúsi úr Corian Vasto Greige
Corian Vasto Greige / mynd: Corian Design
Corian Vasto Laguna á vaskaborðum á almenningssalerni
Corian Vasto Laguna / mynd: Corian Design

Artista litirnir


Nú bætast við 2 nýir litir í Artista línuna sem þá inniheldur 8 fallega liti, í mjög mismunandi tónum.  Artista línan á það sameiginlegt að flæðið er í flestum tilfellum nokkuð milt og getur oft minnt á mjúk penslaför listamanns.

Nýju litirnir tveir heita Artista Drift og Artista Mocha. 

  • Artista Drift er mjög ljós og léttur litur með náttúrulegu og einföldu flæði.
  • Artista Mocha er, eins og nafnið gefur til kynna, kaffibrúnn litur með léttu flæði sem gefur honum skemmtilega áferð.
Corian Artista Drift í fallegum veggklæðningum sem raðað er upp með þrívíddaráhrifum
Corian Artista Drift / mynd: Corian Design
Corian Artista Mocha á baðherbergi með innfelldri handlaug í sama lit
Corian Artista Mocha / mynd: Corian Design

City Roast - djúpur og djúsí


City Roast er eini liturinn sem er stakur og á engan félaga í þessari nýju litaútgáfu. City Roast er djúpur dökkbrúnn litur með einlitum grunni og flögum sem gefa honum líf og skemmtilega eiginleika. 

Þessi fallegi litur sómir sér vel á kaffihúsum, hótelum og baðherbergjum svo eitthvað sé nefnt.

Corian Citi Roast í fallegu barborði á kaffihúsi
Corian City Roast / mynd: Corian Design

Hafirðu áhuga á frekari kynningu eða upplýsingum ertu velkomin/n til okkar á Axarhöfða 18. 

Það er alltaf heitt á könnunni 

Lesa meira

Afgreiðslutímar um páska