micare Gólfsápa - 1 líter

Tilboðsverð6,400 kr

Með virðisauka

Til á lager

Hreinsar og verndar í einu einföldu skrefi!

micare FRESH Floor Cleaner er meira en venjulegur gólfhreinsir. Hann sameinar áhrifaríka hreinsun og ósýnilega yfirborðsvörn í einni einfaldri lausn. Við hverja þvottalotu myndast örþunnt, ósýnilegt verndarlag á gólfinu sem hjálpar til við að draga úr því að óhreinindi festist á yfirborðinu.

Með reglulegri notkun byggist verndin smám saman upp og endurnýjast við hverja hreinsun. Það gerir gólfið auðveldara í viðhaldi og hjálpar til við að halda því hreinu lengur.

Formúlan skilur eftir hreint og rákalaust yfirborð þegar rétt skömmtun er notuð, án þess að breyta útliti eða áferð gólfsins. Auk þess hefur hreinsirinn hinn dásamlega einkennisilm micare.

Helstu kostir

  • 2 í 1 formúla sem hreinsar og verndar í sömu umferð.

  • Myndar ósýnilegt verndarlag sem hjálpar til við að draga úr enduróhreinindum.

  • Gerir gólfið auðveldara í þrifum og viðhaldi til lengri tíma.

  • Verndarlagið breytir hvorki útliti né áferð gólfsins.

  • Skilur eftir hreint og rákalaust yfirborð við rétta skömmtun.

  • Án PFAS, D4/D5-sílikóna og sílikonolía.

  • Inniheldur auðlífbrjótanleg yfirborðsvirk efni úr kókosolíu.

  • Engin hættumerki eða hættuflokkun á vörunni.

  • Með dásamlegum einkennisilm micare.

Notkun og skömmtun

Bætið einum tappafylli af FRESH Floor Cleaner í hvern lítra af vatni og þrífið gólfið eins og venjulega.

Mikilvægt er að fylgja ráðlagðri skömmtun þar sem of mikil notkun getur skilið eftir rákir.

1.000 ml flaska dugar í um 25 gólfþvotta.

Athugið: Ekki nota á ómeðhöndlaðan við. Geymið þar sem börn ná ekki til. Inniheldur linalyl acetate sem getur valdið ofnæmisviðbrögðum.

Skilaréttur: 14 daga skilaréttur á lagervöru sem er ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Sérreglur gilda um sérpantanir. Sjá nánar í skilmálum um vöruskil


Náttúrulegar og umhverfisvænar vörur

Sendum um allt land

Við sendum vörur um allt land. Ef verslað er yfir 20.000 kr. í vefverslun færðu vöruna frítt til þín á næsta pósthús.

Þjónusta

Við svörum spurningum þínum í síma og tölvupósti mánudaga til föstudaga

Örugg greiðslumiðlun

Greiðsluupplýsingar eru meðhöndlaðar á öruggan hátt