Um 100 litir á borðplötum úr Corian®


Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval lita í borðplötum og vöskum
Ertu hrifinn af hreinum lit, mynstruðum lit, eða gegnumlýsanlegum!?
Corian® borðplötur eru til í um 100 mismunandi litum
Corian® frá DuPont™ er í sífelldri þróun og er litavalið ótrúlegt. Corian® borðplötur fást í um 100 litum og litatónum sem gerir hönnunarmöguleikana nær ótakmarkaða. Litirnir skiptast í nokkra litaflokka; hreina liti, mynstraða liti, skýjaða liti og að lokum gegnumlýsanlega liti.
Komdu í heimsókn til okkar og skoðaðu litina
Komdu til okkar að Axarhöfða og skoðaðu litaprufur í sýningarsalnum okkar eða skoðaðu þær á litasíðu Corian®. Það geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.