Borðplötur og vaskar í baðherbergi úr Corian® steinefni


Corian® borðplötur í baðherbergi
Styrkleiki Corian® er glæsileiki og sígilt yfirbragð á sama tíma og efnið er slitsterkt, gegnheilt og samskeytalaust. Baðherbergi eru þeir staðir heimilisins þar sem hvað mest er verið með vatn og raki myndast auðveldlega. Corian® borðplötur eru með innbyggðum baðvöskum sem minnkar hættuna á því að það safnist fyrir óhreinindi og raki í samskeytum. Borðplötur og baðvaskar úr Corian® eru fullkomnir fyrir þá sem gera mikla kröfur til hreinlætis og vilja falleg vaskaborð.
Corian® baðvaskar
Corian® baðvaskar fást í mismunandi formum; köntuðum, kringlóttum sem og sporöskjulöguðum. Vaskarnir fást í mismunandi stærðum og ættu allir að finna vask við sitt hæfi.
Við hjá Orgus erum með vaska frá tveimur framleiðendum. Annars vegar vaskar sem við kaupm beint frá Corian®. Þeir eru alltaf hvítir. Hins vegar vaskar sem við kaupum frá Þýskalandi, en þá er hægt að fá í öllum litum.
Corian® baðkör og sturtubotnar
Við erum með gott úrval af baðkörum, bæði frístandandi og innfeldum. Þetta eru stílhrein baðkör sem auðvelt er að þrífa. Eins býður Corian® upp á sturtubotna í mismunandi stærðum sem auðvelt er að aðlaga að svo til hvaða rými sem er.
Hafðu samband og fáðu verðtilboð
Ef þú hefur áhuga á að fá nánari upplýsingar eða verðtilboð, sendu okkur póst eða líttu við hjá okkur að Axarhöfða 18. Öll vaskaborð eru sérsmíðuð eftir málum og er ekki tekið aukagjald fyrir það. Teikningar með máli eða stærð borðplötu eru nauðsynlegar forsendur þess að geta gefið nákvæmt verð.
Corian® samskeytalaus vaskaborð
Kringlóttur, sporöskjulagður eða ferkantaður, þú finnur þína týpu af vaski hjá okkur!